Lýðræði, gegnsæi og heiðarleiki: Frasar stjórnmálamannsins eða raunverulegur valkostur?

Íslenska þjóðin hefur svo sannarlega upplifað rússíbanareið undanfarin tvö ár. Afleiðingarnar fyrir sálartetrið eru miklar, vantraustið algjört og skotgrafirnar svo djúpar að þær ná næstum því til Kína.

Þjóðin kallar á breytingar við þessar aðstæður. Stjórnlagaþing, þjóðaratkvæðagreiðslur, beinna lýðræði, gagnsæi og síðast en ekki síst heiðarleiki eru á allra vörum. Krafan er að stjórnmálamenn vinni að málefnum fremur en þrætubókarlist; starfi fyrir fólkið fremur en sjálft sig; og gæti almannahagsmuna fremur en sérhagsmuna. Krafan er að fólkið hafi aðkomu að ákvörðunum stjórnmálanna og hafi þannig eitthvað um framtíð sína og umhverfi að segja. Krafan er um breytingar.

Jafnaðarstefnan í hnotskurn

Kröfur þjóðarinnar um breytingar eru í fullu samræmi við stefnu jafnaðarmanna, sem byggir á frelsi og lýðræði, kvenfrelsi, jafnrétti og samábyrgð. Krafan er um samtal á milli stjórnmála og þjóðfélags, samráð í sem flestum málaflokkum og gagnsæi við ákvarðanatöku. Krafan er um lýðræðislegar umræður og lýðræðislega ákvarðanatöku. Samræðustjórnmál verða ekki hædd út af borðinu eins og reynt var þegar Ísland var best í heimi.

Trúverðugleiki

Nú er það orðið svo að allir vilja Lilju kveðið hafa. Flokkar og einstaklingar sem þekktastir eru fyrir digurbarkalegar yfirlýsingar, reykfyllt bakherbergi, einhliða ákvarðanir og það sem oft hefur virst einræðislega tilburði, stíga nú fram og hyggjast leiða fram nýjar áherslur, ný vinnubrögð og opnari umræðu með aukinni aðkomu íbúa.

Er það sannfærandi?

Skoðum stöðuna í Kópavogi: Trúum við því þegar aðili sem í 12 ár greiddi atkvæði með oddvita sínum og leiðtoga og felldi þar með ítrekaðar tilraunir minnihlutans til lýðræðisumbóta, stígur nú fram sem fulltrúi nýrra vinnubragða? Er hann líklegur til þess að leiða fram raunverulegar breytingar?

Meirihluti íbúa vill breytingar á stjórn Kópavogsbæjar

Aðspurður segir meirihluti Kópavogsbúa að þeir vilji breytingar á stjórn bæjarins eftir næstu sveitarstjórnarkosningar, að nýr meirihluti taki við að liðnum kosningunum. Samfylkingin í Kópavogi er eini raunhæfi kosturinn til þess að leiða þær breytingar. Til þess að svo verði þurfa kjósendur að gefa Samfylkingunni öflugt umboð í komandi kosningum.

Skrá nýja athugasemd

Innihald þessa reits verður ekki birt opinberlega.

  • Vefslóðir og netföng breytast sjálfkrafa í tengla.
  • Leyft HTML: <a> <em> <strong> <cite> <code> <ul> <ol> <li> <dl> <dt> <dd> <img> <blockquote>
  • Línur og málsgreinar myndast sjálfkrafa.

Frekari upplýsingar um sniðmátsmöguleika

CAPTCHA
Staðfestum að þú sért mennsk(ur)
8 + 4 =
Leystu dæmið og skráðu lausnina. T.d. ef spurningin er 1+3, skráirðu 4.