Heiðarleikasáttmáli. Hvað felst í lýðræðislegum vinnubrögðum?

Ég sagði um daginn að ég hefði boðið mig fram í forvali Samfylkingarinnar í Kópavogi til að sýna fram á að lýðræðislegir stjórnunarhættir - þar sem hlustað væri á alla raddir sem aðild eiga að máli, og þar sem gagnsæi og heiðarleiki væru í heiðri höfð - væru vísir á betra mannlíf en leyndarhættir og valdníðsla hafa í för með sér. Ég sagði einnig að fyrir það stæði ég og fyrir það muni ég standa í bæjarstjórn Kópavogs að loknum sveitastjórnarkosningum.

En hvað þýða þessi orð og hvernig munu þau hafa áhrif á starf Samfylkingarinnar í Kópavogi komist hún í meirihluta eftir kosningar?

Það bíður okkar núverandi og verðandi stjórnmálamannanna að endurbyggja traust kjósenda á vinnu okkar; að treysta á ný stoðir lýðræðisins, stoðir samfélagsins sem við byggjum saman. Það bíður okkar í raun að endurnýja samfélagssáttmálann við íbúana. Þetta er gríðarstórt verkefni sem verður ekki unnið svo vel sé nema íbúarnir trúi því að unnið sé af einlægni og heiðarleika að verkefninu. Þess vegna vil ég vinna að því að Samfylkingin í meirihluta geri heiðarleikasáttmála við íbúa Kópavogs um starf sitt við stjórn Kópavogs.

Heiðarleikasáttmáli felst í því að fulltrúar meirihlutans heiti því að starfa eftir vel skilgreindum siðferðisreglum (ítarlegri og innihaldsríkari en siðareglur kjörinna bæjarfulltrúa og stjórnenda hjá Kópavosgbæ.) í öllum sínum störfum fyrir meirihlutann. Heiðarleikasáttmállinn myndi meðal annars birtast í því að meirihluti bæjarstjórnar Kópavogs setji fram markmið og forsendur við gerð málefnasamningsins, sem birtur verður ásamt markmiðunum og forsendunum á vef bæjarins og flokksins. Með þessum hætti er málefnasamningurinn lifandi plagg sem unnið er eftir á kjörtímabilinu að gefnum þeim forsendum og markmiðum sem honum fylgja. Þegar til þess kemur, eins og verða vill, að forsendur markmiða breytist þá eru gerðar athugasemdir við málefnasamninginn og markmiðin aðlöguð að breyttum forsendum - með gegnsæjum og aðgengilegum hætti fyrir alla bæjarbúa.

Heiðarleikasáttmáli Samfylkingarinnar í Kópavogi myndi einnig fela í sér heit um lýðræðisleg vinnubrögð bæjarfulltrúanna, í bæjarstjórn og innan flokksins. Taka ætti til athugunar ábendingar úr skýrslu rannsóknarnefndar alþingis, hvort ekki þurfi að auka formfestu vinnubragða í stjórnsýslu Kópavogsbæjar og innan Samfylkingarinnar í Kópavogi; hvort ekki þurfi að bæta umsýslu með fundum, dagskrár þeirra, fundarritun, upplýsingagjöf til annarra en fundarmanna og margt fleira því tengt.

Heiðarleikasáttmáli Samfylkingarinnar í Kópavogi myndi jafnframt fela í sér loforð Samfylkingarinnar um verkefnin sem unnin verða, með hvaða hætti þau verða unnin og hvernig bæjarbúar finna fyrir þeim breytingum sem verða á stjórn bæjarins fyrir vikið.

Sem dæmi um hvernig markmiðin sem Samfylkingin í Kópavogi setur fyrir komandi kosningar myndu vonandi skila sér inn í heiðarleikasáttmála eftir kosningar má nefna:

  • standa vörð um velferðarþjónustuna og að hagræðing og endurskipulagning í rekstri bæjarins bitni ekki á þeim sem síst skyldi.
    Markmiði þessu verður náð með því að bera velferðargleraugun á nefinu við alla ákvarðanatöku bæjarins.
    Forsendur þessa markmiðs er fjárhagslegur burður Kópavogsbæjar til verkefnisins á hverjum tíma.
     
  • styðja við hvers kyns atvinnuþróun, t.d. frumkvöðlastarf, nýsköpun og skapandi atvinnugreinar.
    Að stuðla að verklegum framkvæmdum, setja hvata inn í byggingariðnaðinn og ráðast í ýmis verkefni á sviði umhverfismála.
    Markmiði þessu verður náð með því að ganga til samstarfs við byggingaraðila, húsnæðissamvinnufélög, Íbúðalánasjóð og önnur fjármálafyrirtæki, þrýsta á opinbera aðila sem aðild eiga að verklegum framkvæmdum í landi Kópavogs og forgangsraða fjármunum við fjárhagsáætlanagerð í þágu þessara verkefna.
    Forsendur þessa markmiðs eru að samstarf komist á og að sanngarnt verð fáist fyrir eignir, að uppbygging íbúða verði ekki byrði á rekstrarreikningi bæjarfélagsins og að fjárhagslegt bolmagn sé til athafna.
     
  • sérhvert barn og unglingur geti notið þess sem boðið er upp á óháð efnahag foreldra.
    Markmiði þessu verður náð með því að tryggja einfaldar boðleiðir og öflugt samstarf á milli félagsþjónustunnar og skólastjórnenda, forsvarsmanna íþróttafélaganna og annarra aðila sem vinna með börnum og unglingum.
    Forsendur þessa markmiðs er samvinna og markviss upplýsingagjöf ásamt fjárhagslegum burðum Kópavogsbæjar.
     

Í eiginlegum heiðarleikasáttmála og meðfygljandi gagnvirkum og markmiðasettum málefnasamningi yrði hvert atriði nánar útfært í samvinnu milli þeirra aðila sem saman mynda meirihluta eftir komandi kosningar.

Skrá nýja athugasemd

Innihald þessa reits verður ekki birt opinberlega.

  • Vefslóðir og netföng breytast sjálfkrafa í tengla.
  • Leyft HTML: <a> <em> <strong> <cite> <code> <ul> <ol> <li> <dl> <dt> <dd> <img> <blockquote>
  • Línur og málsgreinar myndast sjálfkrafa.

Frekari upplýsingar um sniðmátsmöguleika

CAPTCHA
Staðfestum að þú sért mennsk(ur)
16 + 0 =
Leystu dæmið og skráðu lausnina. T.d. ef spurningin er 1+3, skráirðu 4.