Ég er í liðinu sem sigraði Gunnar

Gunnar Birgisson fyrrverandi bæjarstjóri í Kópavogi drepur niður penna í Morgunblaðinu í gær, eins og honum er lagið. Sannleikskornin leikur hann með af allnokkurri skáldagáfu.

Ómaklegir siðir

Gunnar að ómaklegum sið „veður í manninn“ líklega til að forðast umræðu um málefnið. Hann velur að ráðast að Guðríði Arnardóttur og Hafsteini Karlssyni oddvitum Samfylkingarinnar í Kópavogi og telur sig geta það á minn kostnað með tilvísun í bloggfærslu sem ég skrifaði fyrir hálfum mánuði. Í greininni gefur hann okkur innsýn í vinnubrögð stjórnmálamanna sem bera ábyrgð á því að fjöldi kjósenda sat heima á kjördag. Kjósendur vildu nefnilega ekki lengur stórkarlalegar yfirlýsingar, gerræðislega stjórnhætti, glannalegan sannleika eða stjórnmálamenn sem eyða orkunni í að fella aðra fremur en að ræða málefnin sem þeir hafa fram að færa.

Kjósendur vildu heiðarleika, lýðræðisumbætur, málefnalegar umræður, gegnsæjar leikreglur, samvinnu og fagleg vinnubrögð – og kjósendur völdu: Sjálfstæðisflokkurinn missti þriðjung atkvæða sinna frá kosningunum 2006.

Jákvæð kosningabarátta Samfylkingarinnar

Samfylkingin háði jákvæða kosningabaráttu, tók ekki þátt í skítkasti eða persónuvígum og svaraði ekki ómaklegum aðdróttunum annarra framboða öðruvísi en faglega og málefnalega. Samfylkingin mætti Kópavogsbúum á þeirra heimavelli með því að banka á ríflega 10 þúsund hurðir og sendi frá sér upplýsingar sem minntu Kópavogsbúa á þær breytingar sem þörf var á og sem íbúarnir sjálfir höfðu lýst yfir að þeir vildu gera á stjórn bæjarins. Þess vegna var fylgistap Samfylkingarinnar í Kópavogi ekki í takt við refsinguna sem Samfylkingin á landsvísu hlaut, væntanlega vegna þátttöku í ríkisstjórn við aðstæður sem eiga sér engar líkar hér á landi.

Skotgrafarhernaður Gunnars - gamaldags stjórnmál

Gunnar fer rangt með þegar hann fullyrðir að ég hafi í bloggfærslu minni sakað félaga mína um ásetning um að svíkja kosningaloforðið um Kópavogsbrú. Sannleikurinn er að í bloggfærslunni gagnrýndi ég vinnubrögð umhverfis hugmyndina. Ég hafði séð ágalla á þessari fyrstu tillögu og framsetningu hennar, taldi að þar þyrfti að bæta annars ágæta hugmynd. Þá var bent á þá þekktu staðreynd sem iðkuð hefur verið (og mætti Gunnar Birgisson þar líta í eigin barm), að „ekki þurfi endilega að standa við kosningaloforð“. Mér ofbauð, ég reiddist mjög og var refsað fyrir, bæði gagnrýnina og reiðina. Það er þessi skilyrðislausa krafa um jákvæð viðbrögð, þetta óþol gagnvart gagnrýni, það eru baktjaldamakk og vinnubrögð refsingar sem ég var ósátt við og gagnrýndi í bloggi mínu. Að félagar mínir hafi verið með ásetning um svik við kosningaloforð er tilbúningur Gunnars í skotgrafarhernaði gamaldags stjórnmála - þeirra stjórnmála sem ég berst gegn af fullum krafti.

Bætt vinnubrögð í nýjum meirihluta

Það er rétt að ég setti fram gagnrýni á ýmislegt sem betur má fara í innra starfi Samfylkingarinnar í Kópavogi í bloggfærslu minni. Hún var skrifuð til að skapa nauðsynlega umræðu, tilraun til að færa vinnubrögð til betri vegar. Ég tel að opin og hrein umræða sé nauðsynleg – ekki síst við þær aðstæður sem nú ríkja. Mér sýnist margt benda til að þessi tilraun mín, þótt dýrkeypt sé, ætli að takast og vandað verði til þeirra fjölmörgu verka í tiltektinni sem framundan er í bæjarmálum Kópavogs eftir tuttugu ára völd Sjálfstæðisflokks og Framsóknar.

Spörum pensillínið

Gunnar fer einnig rangt með þegar hann fullyrðir að ég sé ekki í „liðinu“. Ég er varabæjarfulltrúi í meirihlutasamstarfinu í Kópavogi. Ég hef lýst því yfir að ég styðji þann málefnasamning sem undirritaður var og ég hafði aðkomu að því að móta. Ég er í liðinu – því liði sem sigraði Gunnar.

Ég er jafnaðarmaður, ég er félagi í Samfylkingunni, ég styð meirihlutann í Kópavogi og mun að sjálfsögðu fylgja meirihlutanum í málum. Meirihlutinn mun ekki falla þó ég taki sæti í bæjarstjórn Kópavogs á meðan málefnin sem þar eru fram borin eru í samræmi við málefnasamning meirihlutans, jafnaðarstefnu Samfylkingarinnar og skýran vilja kjósenda um breytt vinnubrögð stjórnmálamanna.

Grein þessi birtist í Morgunblaðinu 29. júní 2010.

Þú réttir Gunnari samt vopnin

Þú réttir Gunnari samt vopnin í hendurnar, með fyrri bloggfærslu þinni. Hlýtur að hafa vitað að hún yrði notuð svona af andstæðingum.

Eitt skref til baka

Kópavogsbúi, stundum þarf að stíga eitt skref afturábak til að komast áfram. Flestir eru hræddir við slíkt. Ekki Elfur.

ÞJóð veit þá þrír vita og því ekki að ræða þá málin frekar enn að eyða úðri í að fela þau.
Að opna fyrir lýðræðislega umræðu hleypir jú andstæðingunum að því sem verið er að gera, en slíkt skiptir engu máli ef unnið er af heiðarleika og kjósendur vita það.

Baktjaldamakk og svik er samfélag sjálfstæðismanna, gamaldags stjórnmálamanna og þeirra stjórnviska sem með jöfnu millibili kemur í bakið á þeim. Þjóðfélagið hefur ekki þörf fyrir Gunnar Birgisson eða hans líka. Þeirri tegund stjórnmálamanna var hafnað í kosningunum.

Allt í plati ?

Hvað gerðu þau Guðríður og Hafteinn eiginlega við þig þegar þau refsuðu þér ? Hvernig í ósköpunum getur maður skilið fyrri færsluna þannig að þú hafir aðeins ætlað að bæta annars ágæta tillögu ?
Seinni færslan er með þvílíkum ólíkindum miðað við fyrri færsluna að maður skilur ekki upp né niður. Ég held að fáír muni skilja svona lögfræðilógík eins og þú beitir í yfirklórinu. Maður var farinn að halda að það væri eitthvað púður í þér.

Almar og silfraða maddaman

Fannst allt í einu sem þetta ætti vel við í dag þegar Almar minnti á sig.

Skrifaði niður þetta samtal okkar fyrir rúmu ári síðan !

http://stjaniloga.blog.is/blog/stjaniloga/entry/788267/

Skrá nýja athugasemd

Innihald þessa reits verður ekki birt opinberlega.

  • Vefslóðir og netföng breytast sjálfkrafa í tengla.
  • Leyft HTML: <a> <em> <strong> <cite> <code> <ul> <ol> <li> <dl> <dt> <dd> <img> <blockquote>
  • Línur og málsgreinar myndast sjálfkrafa.

Frekari upplýsingar um sniðmátsmöguleika

CAPTCHA
Staðfestum að þú sért mennsk(ur)
6 + 11 =
Leystu dæmið og skráðu lausnina. T.d. ef spurningin er 1+3, skráirðu 4.