
Það fór ítrekað hrollur um mig þegar ég hlustaði á frásögn Örnu Harðardóttur í gærkvöldi um stjórnsýsluna og málsmeðferðina í samskiptum íbúasamtakanna Betri byggðar á Kársnesi við Kópavogsbæ sl. þrjú ár. Orðfærið sem hún notaði bar með sér heiftina sem var í bæjaryfirvöldum og einstrengingslegar fyrirætlanir bæjarins í skipulagsmálum vestast á Kársnesinu.
Þetta var sem sagt á ársfundi íbúasamtakanna og Arna Harðardóttir formaður Betri byggðar á Kársnesi flutti okkur félögunum skýrslu stjórnar frá fyrstu þremur árum samtakanna.
Ég man eins og það hefði verið í gær, andrúmsloftið sem var í Kópavogi í ágúst 2007, þegar ég flutti heim til Íslands á nýjan leik eftir ársdvöl í Noregi. Loftið var þrungið spennu og óánægjan með yfirgang bæjaryfirvalda var á allra vörum. Ég mætti gáttuð á fund íbúasamtakanna í Salnum og yfirgaf fundinn enn gáttaðri, því málflutningur bæjarstóra Kópavogs á fundinum var honum og stjórnsýslu bæjarins til háborinnar skammar.
Það var þarna sem ég ákvað að ég ætlaði að skipta mér að bæjarmálunum í Kópavogi.
Eins og gefur að skilja, þá voru líflegar umræður á fundinum eftir eins magnaða frásögn og hin lotuskipta hnefaleikakeppni á milli Betri byggðar og Kópavogsbæjar birtist okkur í gærkvöldi. Í umræðunum kom fram hugmynd um að haldinn yrði íbúafundur með frambjóðendum fyrir komandi sveitastjórnarkosningar, þar sem rætt yrði um skipulagsmál og önnur nærumhverfismál, svona til þess að ná fram loforðum þeirra stjórnmálaflokka sem bjóða ætla fram í komandi kosningum, um fyrirkomulag skipulags- og lýðræðismála eftir kosningar. Ég tók heilshugar undir þá hugmynd og hvatti íbúsamtökin Betri byggð á Kársnesi og Betri Nónhæð sem voru með fulltrúa á ársfundinum, til þess að senda áskorun til allra stjórnmálaflokka í Kópavogi að mæta á íbúafund og ræða skipulagsmál og stjórnsýslu milliliðalaust við bæjarbúa fyrir komandi kosningar.
Vonandi tekst íbúasamtökunum að koma á slíkum fundi. Ég mun klárlega mæta á hann og sitja á fremsta bekk að hlýða á útskýringar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks á nýjum áherslum, nýjum vinnubrögðum og opnari umræðu. Ég mun að sjálfsögðu vænta útskýringa á því hvers vegna breyta eigi vinnubrögðunum núna, að þeirra mati, og hvernig það geti talist trúverðugt að aðilar sem stjórnað hafa saman í 20 ár með þeim hætti sem Arna Harðardóttir lýsti svo sterkt þegar hún las skýrslu stjórnar Betri byggðar, taki nú upp á því að breyta vinnubrögðunum.
Treystum við þeim virkilega til þess?